Reykjavíkurratleikur – Spurningakeppni á faraldsfæti!

Hafðu samband fyrir verð!
Hafðu samband fyrir verð!
Full Name*
Email Address*
Travel Date*
Number of People*
Your Enquiry*
* I agree with Terms of Service and Privacy Statement.
Please agree to all the terms and conditions before proceeding to the next step
Save To Wish List

Adding item to wishlist requires an account

2197
Lýsing á upplifun

Rafrænn spurningaleikur um miðbæ Reykjavíkur.

Undirbúðu þig undir æsispennandi og skemmtilegt ævintýri í hjarta Reykjavíkur!
Taktu þátt í ratleik um miðbæ Reykjavíkur sem sameinar tækni, þekkingu og skemmtun.

Hvernig fer þetta fram?

Ævintýrið byrjar þegar liðið þitt hittir leikstjórnandann á Arnarhóli en leikurinn hefst með því að skanna QR-kóða. Leikurinn er gagnvirkur, með spurningum og áskorunum sem opnast á meðan þú gengur um miðbæinn. Svæðið nær yfir þekktustu kennileiti miðborgarinnar svo þú upplifir það besta í Reykjavík á meðan þú reynir á þekkingu þína.

Hvernig virkar leikurinn

Móttaka og kynning: Ævintýrið byrjar á Arnarhóli, þar sem leikstjórnandi okkar tekur á móti hópnum, útskýrir reglurnar og skiptir hópnum í lið. Fjöldi keppenda í hverju liði er sveigjanlegur og hægt að laga til eftir óskum hópsins. 

Liðsuppsetning

Hvert lið hefur liðsstjóra sem stjórnar leiknum í sínum síma. Liðin velja sér lit eða nafn tengt norrænum guði til að einkenna hópinn.

Upphaf leiks

Eftir að QR-kóðinn er skannaður hefst leikurinn. Þegar þið gangið um borgina birtast svæði merkt með „?“ á kortinu í símanum. Þegar þið komið að þessum svæðum opnast fjölvalsspurningar sem reynir á þekkingu ykkar á sögu, menningu og leyndardómum Íslands og Reykjavíkur.

Battle Royale-eiginleiki

Hægt er að stilla leikinn þannig að leiksvæðið minnkar stöðugt (Battle Royale-keppni).
Útsjónarsemi mun hjálpa til við að halda ykkur innan hringsins, annars tapið þið stigum.

Gagnvirkar áskoranir

Auk þeirra spurninga sem þarf að svara mun leikstjórnandinn senda ykkur verkefni á meðan á leiknum stendur, svo sem að taka skemmtilegar og skapandi myndir, leysa þrautir eða semja stutt ljóð sem þið þurfið að senda á stjórnandann.  Hér reynir á ímyndunarafl liðanna en þau fá aukastig fyrir að klára hvert verkefni.

Auka eiginleikar

Þátttakendur geta notað sérstaka eiginleika til að stríða öðrum liðum, svo sem að sleppa sýndar-sprengjum, stöðva framgang keppinauta um tíma og fleira í þeim dúr.
Þessi bellibrögð auka spennu og gleði!

Sérsniðin upplifun

Það er hægt að sérsníða leikinn að þörfum hópsins. Við getum aðlagað spurningarnar að þema sem tengist ykkur eða fyrirtækinu, sem mun auka áhuga og þátttöku.  Einnig er möguleiki á því að færa leikinn á annað svæði ef þörf er á og / eða enda leikinn á ákveðnum stað.

Lengd leiksins

Lengd á þessari upplifun er sveigjanleg og hægt er að laga leikinn að tímaramma hópsins. Hvort sem þið hafið 60, 90 mínútur eða lengri tíma, þá aðlögum við leikinn til að tryggja að allir hafi gaman.

Tungumál

Leikurinn er fáanlegur á ensku eða íslensku, svo hann ætti að henta flestum.

Lokastaður

Nákvæmur lokastaður verður upplýstur við upphaf leiks, sem skapar spennu og eftirvæntingu meðal þátttakenda.

Eiginleikar leiksins

Leikurinn er keyrður í vafra og auðvelt er að aðlaga hann að ýmsum þörfum. Hann er tilvalinn fyrir hópefli, fyrirtækjaviðburði og aðrar upplifanir. Leikurinn virkar í flestum farsímavöfrum, sem tryggir að allir geti tekið þátt vandræðalaust. Hvort sem þú ert að leita að skemmtilegri og fræðandi áskorun fyrir teymið þitt eða að skipuleggja spennandi fyrirtækjaviðburð, þá býður Reykjavíkurratleikurinn upp á vettvang sem hægt er að sérsníða að þörfum ykkar hóps.

Af hverju að velja þessa upplifun?

  • Gagnvirk skemmtun: Fullkomið fyrir hópefli, fyrirtækjahópa og alla sem elska spennandi áskoranir
  • Battle Royale-spenna: Haltu þig innan hringsins til að tapa ekki stigum og reyndu að vinna önnur lið í rauntíma.
  • Eiginleikar: Notaðu sérstaka eiginleikar til þess að stríða öðrum liðum
  • Upplifðu miðbæ Reykjavíkur á nýjan hátt
  • Hægt er að sérsníða leikinn að þínum þörfum

Gott að vita!

  • Virkar með flestum netvöfrum en Chrome & Safari virka best
  • Hægt er að stilla tímalengdina en oft um 90 mínútur
  • Ef þú hefur áhuga þá endilega senda okkur skilaboð: [email protected]

Hafðu samband við okkur fyrir frekari upplýsingar

Safnaðu í lið, taktu með þér keppnisandann og byrjum Reykjavíkurratleikinn! Þetta er ekki einungis hefðbundin gönguferð – þetta er einstakt ævintýri í miðborg Reykjavíkur. Pantaðu núna til að tryggja þér pláss í þessari ógleymanlegu upplifun! Ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt fá frekari upplýsingar, þá erum við til staðar til að aðstoða við að skapa hið fullkomna ævintýri fyrir þinn hóp!  Netfangið er = [email protected]

Looking for something different?

Get in touch with Your Friend in Reykjavik for all your Iceland travel planning needs. We love to help you plan the perfect trip, making personal recommendations for tours and activities you should check out during your visit. Craft your custom Iceland itinerary with our expert guidance!

Reviews: