Í þessari prívat útgáfu þá leggjum við af stað þegar þér hentar og það er jafnvel hægt að aðlaga gönguna að þínum óskum.
Gakktu með okkur um huliðsheima Íslands þar sem við heimsækjum álfa, tröll og drauga og síðast en ekki síst fræðumst um íslenska galdra.
Þú færð að sjá og upplifa fáfarnar slóðir Reykjavíkur í þessum skemmtilega 90 mínútna göngutúr.
Leiðsögumaðurinn þinn fræðir þig um íslenskar þjóðsögur og sýnir fram á að það er ekki að ástæðulausu sem við erum kölluð söguþjóðin.
Þessi skemmtilega miðbæjarganga er tilvalin fyrir stutta afþreyingu eða hópefli fyrir fyrirtæki,fjölskyldur, saumaklúbba, steggjanir eða gæsanir.
Your Friend In Reykjavik er með yfir 1000 fimm stjörnu dóma á síðum eins og Tripadvisor og við kunnum þá list að skemmta og fræða í leiðinni.