Í klóm kattarins

Kattaganga
FromISK 49,900
Kattaganga
FromISK 49,900
Save To Wish List

Adding item to wishlist requires an account

2180

Tour description

Við segjum sögu íslenska kattarins allt frá landnámi til dagsins í dag. Saman munum við skoða þjóðsögur og hjátrú um ketti á Íslandi og víðar um heim. Einnig verður farið yfir sögu kattarins annars staðar í heiminum.

Innifalið í ferðinni er heimsókn á hið eina sanna Kattakaffihús þar sem við fáum tækifæri til að klappa fallegum köttum á meðan við súpum heitan drykk og jöplum á íslensku bakkelsi.

Ef við erum heppin og kattaguðirnir leyfa, þá munum við hitta nokkra af frægustu köttum Reykjavíkur eins og Baktus, Jónsí, Ófelíu og fleiri.

Ferðin byrjar við Öndvegissúlurnar á Ingólfstorgi og endar í Höggmyndagarði Einars Jónssonar uppi á Skólavörðuholti.

Ferðin tekur um 2 klukkutíma. 10% af ágóða ferðarinnar fer til Kattavinafélags Íslands í Kattholti.

Innifalið í ferðinni

  • Leiðsögn sérfróðs leiðsegjanda
  • Einnig innifalið er kaffi eða heitt súkkulaði og íslenskt bakkelsi á Kattakaffihúsinu

Hápunktar ferðarinnar

  • Gyllti kötturinn
  • Við leitum að jólakettinum í bókabúð
  • Við lærum um íslenskar þjóðsögur í földum garði
  • Við skoðum Reykjavíkurtjörn
  • Við heilsum upp á ketti í Reykvískum húsasundum
  • Kattakaffihúsið

Af hverju mælir Your Friend in Reykjavik með ferðinni

10% af ágóða ferðarinnar fer til Kattavinafélags Íslands í Kattholti

Looking for something different?

Get in touch with Your Friend in Reykjavik for all your Iceland travel planning needs. We love to help you plan the perfect trip, making personal recommendations for tours and activities you should check out during your visit. Craft your custom Iceland itinerary with our expert guidance!

Reviews: